Hæ hæ. Ég skrapp í heimsókn til Rósar frænku og Agús á sunnudaginn og kom heim í dag. þau búa í um 3 klst fjarlægð. Það var alveg ótrúlega gaman og endurnærandi að komast aðeins í burtu og lifa smá fjölskyldulífi.
Við gerðum ýmislegt skemmtilegt saman til dæmis fórum út að borða og í bíó og keyptum hvolp fyrir vinkonu hennar Rósar. Hann var ekkert smá sætur og skemmtilegur og mig langaði mest að taka hann heim með mér en ég er ekki alveg viss um hversu hrifin Táta hefði verið. Hún er svo mikil prinsessa og hefur örugglega engan áhuga á að deila sviðsljósinu með öðrum hundi
Hjá Rós var auðvitað fjölbreytt dýralíf eins og alltaf en hún bjargar veikum og heimilislausum dýrum og hjúkrar þeim heima hjá sér og finnur þeim síðan góð heimili. Ég er viss um að hún á góðan stað vísan á himnum fyrir alla þá vinnu og peninga sem hún leggur í að hjálpa greyið dýrunum

Ég taldi 7 hunda, 2 ketti, fiska og talandi páfagauk hjá henni núna og það er nú samt frekar rólegt miðað við venjulega hjá henni. Reyndar var hún beðin um að taka veikan bobcat (sem er einhver tegund af villiketti, aðeins minni en fjallaljón var mér sagt) að sér og hjúkra honum á meðan ég var þarna. Ég verð nú að viðurkenna að ég var hálffegin að það varð ekkert úr því. Veit ekki alveg hvernig ég hefði sofið vitandi af þeirri veru í næsta herbergi

Samt hefði það nú verið sniðug saga að segja frá. En það kom mér annars á óvart hversu fjölbreytt dýralífið hérna á Flórída er. Hélt að það væru aðallega krókódílar hérna því þetta er nánast allt fenjaland en það er nú aldeilis ekki svo. Bara á leiðinni til Rósar sá ég skilti sem vöruðu við pantherum (pardusdýr held ég á íslensku) og svo annað skilti sem sagði að á þeim slóðum væru skógarbirnir. Svo keyrði ég fram á 4 hrægamma sem voru að gæða sér á dauðu dýri á veginum. Þeir kipptu sér ekkert upp við að ég keyrði upp að þeim og tók nokkrar myndir. Vöppuðu bara um og fengu sér í svanginn.
Á meðan ég var hjá Rós fórum við í heimsókn til Smára sonar hennar og Alísu konunnar hans sem búa í sama bæ. Þar hitti ég dóttur þeirra í fyrsta skipti hún heitir Sophia Isabella og er 4 mánaða gömul og algjört krútt. Nýja húsið þeirra er mjög bjart og fallegt og virtust þau bara voða ánægð með lífið og tilveruna.
Jæja svo keyrði ég heim í dag hálfleið að þurfa að fara strax og keyrði beint upp í skóla til að koma lag á peningamálin þar sem að tókst þannig að ég get byrjað að fljúga aftur á morgun, þarf aldeilis að vera dugleg núna!!!! Er annars búin að framlengja um viku og vona að ég sleppi með það og þurfi ekki að vera lengur.
Þegar ég svo kom loksins heim í íbúð beið mín bréf og pakki með ýmsu góðgæti og glaðningi frá mömmu. Vá hvað það var gaman að fá hann sérstaklega sérstalega bréfið, fólk er alveg hætt að skrifa bréf, það er bara tölvupóstur núna sem er ekki næstum því jafn skemmtilegur. Þannig að núna ligg ég bara uppi í rúmi og skrifa þetta og hugsa um ykkur öll og gæði mér á smá íslensku nammi frá mömmu með bros á vör
Kristín María hringdi í mig um daginn og sagði mér aldeilis frábærar fréttir. Hún er komin með vinnu á Airbus hjá Atlanta og byrjar í þjálfun núna í október og mig langar bara að óska henni enn og aftur innilega til hamingju með þetta
En nú held ég að ég sé búin að ausa úr mér öllum þeim fréttum sem mér dettur í hug í bili en skrifa meira bráðum þegar ég er búin að fljúga svolítið og hef fleiri fréttir. Bið að heilsa ykkur öllum koss og knús ykkar Dana Björk